Hafdís Sigurðardóttir heldur áfram að bæta Íslandsmetum í safnið. Á júnímóti UFA sem fram fór á Þórsvellinum í gær gerði hún sér lítið fyrir og bætti níu ára gamalt Íslandsmet Sunnu Gestsdóttur í 300 m hlaupi. Hafsdís hljóp á 38,59sek en gamla metið var 38,72. UFA óskar Hafdísi til hamingju með þennan glæsilega árangur. Góð byrjun á keppnistímabilinu hjá henni og það verður spennandi að sjá hvort fleiri met fá ekki að fjúka þegar líður á sumarið.