• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Hafdís átti frábæran dag

8465335721_9ba3b5b4fa_b_640Hafdís Sigurðardóttir byrjaði síðasta daginn á Smáþjóðaleikunum með því að vinna til silfuverðlauna í 200 m hlaupi kvenna, en hún kom í mark á 23,82 sek, vindur enginn í hlaupinu. Þetta er bæting á hennar persónulega árangri, en hún átti best 24,00 frá í fyrra. Hún landaði svo silfri í 4x100m hlaupi með félögum sínum en sveitina skipuðu einnig Sveinbjörg Zophoníasdóttir, María Rún Gunnlaugsdóttir og Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir. Sveitin kom í mark á tímanum 46,43 sek.

Toppurinn hjá Hafdísi var svo gull í næstsíðustu grein mótsins 4x400m boðhlaupi, þegar íslenska sveitin sigraði með yfirburðum, en þær komu í mark tæpum 4 sek. á undan næstu sveit. Tími sveitarinnar var 3:40,97 mín. Sveitina skipuðu þær Stefanía Valdimarsdóttir, Fjóla Signý Hannesdóttir, Hafdís Sigurðardóttir og Aníta Hinriksdóttir.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA