Hafdís og Kolbeinn Höður sópuðu að sér verðlaunum á uppskeruhátíð FRÍ sem haldin var laugardaginn 16. nóvember. Þau hlutu viðurkenningar fyrir Íslandsmet sín, ásamt Anítu Hinriksdóttur úr ÍR, en þessir þrír einstaklingar geta státað af því að hafa sett Íslandsmet á árinu.
Hafdís hlaut einnig viðurkenningu fyrir besta spretthlaupsafrek ársins. Það afrek vann hún þegar hún hljóp 200m á tímanum 23,82 s á Smáþjóðaleikunum í Luxemborg, sem gefur 1072 stig samkvæmt stigatöflu IAAF. Þess má geta að þessi tími er einungis 1/100 s frá Íslandsmeti Guðrúnar Arnardóttur í sem sett var árið 1997.