Hafdís Sigurđardóttir hefur veriđ útnefnd íţróttamađur UFA 2013. Hafdís bar höfuđ og herđar yfir keppinauta sína í spretthlaupum og langstökki á Íslandi á árinu. Hún setti ţrjú glćsileg Íslandsmet og vann fjölda Íslandsmeistaratitla.
Hafdís setti sitt fyrsta Íslandsmet í flokki fullorđinna í sumar er hún tvíbćtti metiđ í langstökki kvenna og stökk 6,31m og síđan 6,36m. Ţar međ bćtti hún met Sunnu Gestsdóttur sem var 6,30m frá árinu 2003 um 6cm.
Hún bćtti svo um betur í sumar og setti einnig Íslandsmet í 60m og 300m hlaupum kvenna.
Hún er sexfaldur Íslandsmeistari kvenna í spretthlaupum og langstökki innan og utan-húss á árinu 2013.
Hún er ósigruđ í öllum hlaupum sem hún tók ţátt í á Íslandi sumariđ 2013 og er stigahćsta kona í spretthlaupum á árinu í 100m, 11,88sek, 200m, 23,81sek og 400m 54,03sek. Hún bćtti sinn persónulega árangur í öllum hlaupum enn á ný 2013, og er á öruggri leiđ inn á stćrstu heimsmótin í frjálsíţróttum.
Hafdís vann verđlaun sem stigahćsti (IAAF) einstaklingur á Íslandi í spretthlaupum í lokahófi FRÍ s.l. haust eins og sl. ár. Hún er í Ólympíuhópi FRÍ 2016 eftir keppnistímabiliđ 2013 í langstökki, 200m og 400m hlaupum, og stefnir ađ ţátttöku á Ólympíuleikunum í Ríó 2016.
Hafdís keppti fyrir Íslands hönd á Smáţjóđaleikum í Luxemburg og hlaut verđlaun í spretthlaupum langstökki og bođhlaupum á mótinu.
Hafdís er lang stigahćsti einstaklingur UFA á mćlikvarđa IAAF síđastliđin 2 ár.
Stjórn UFA óskar Hafdísi til hamingju međ titilinn sem er verđskuldađur, enda hefur Hafdís lagt mikiđ á sig til ađ ná ţeim árangri sem hún er nú ađ uppskera. Ćfingin skapar meistarann segir máltćki sem á vel viđ hjá Hafdísi. Vonumst viđ til ađ nýtt ár verđi henni gjöfult sem aldrei fyrr.