Hafdís íþróttamaður Akureyrar 2013

Hafdís Sigurðardóttir, íþróttamaður Akureyrar 2013

Hafdís Sigurðardóttir hefur verið kjörin Íþróttamaður Akureyrar 2013.Hafdís hefur æft frjálsar íþróttir af kappi í mörg ár undir dyggri leiðsöng Gísla Sigurðssonar þjálfara UFA og hefur lagt mikið á sig til að ná þeim árangri sem hún er nú að uppskera. Hún átti gríðarlega gott keppnisár í fyrra, setti þrjú Íslandsmet og vann fjölda Íslandsmeistaratitla.

UFA óskar Hafdísi til hamingju með árangurinn og verðskuldaðan titil.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA