Hafdís íþróttamaður Akureyrar

Íþróttamaður Akureyrar
Íþróttamaður Akureyrar

Í dag var lýst kjöri á íþróttamanni ársins á Akureyri.  Hafdís Sigurðardóttir varð þar hlutskörpust annað árið í röð.  Hún er vel að þessari viðurkenningu komin enda var árið 2014 ár stanslausra framfara og persónulegra bætinga.  Hafdís sló Íslandsmetið innanhúss og utan á árinu og hljóp mjög reglulega undir 12 sekúndum 100 metrana.  Hún keppti með landslíðinu í Evrópubikarkeppninni og stóð þar fremst meðal jafningja.  Hún varð í 9.sæti í kjöri á íþróttamanni ársins hjá íþróttafréttamönnum efst frjálsíþróttamanna.  Hún er vaxandi íþróttamaður sem spennandi verður að fylgjast með á árinu 2015 þar sem hennar aðalmarkmið verður að ná lágmarki inn á Olympíuleikana í Ríó 2016.  Með sama dugnaði og áður verður það markmið í húsi fyrr en varir.  Innilegar hamingjuóskir Hafdís, njóttu vel.

 

Hér er myndir frá athöfninni í Hofi, teknar af Þóri Tryggvasyni (nema myndin með foreldrunum)


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA