Hafdís Sigurðardóttir verður ein af 5 keppendum sem munu keppa fyrir Íslands hönd á EM sem hefst þriðjudaginn í næstu viku og fer fram í Zürich í Sviss. Þar mun hún keppa í langstökki og 200m hlaupi en Frjálsíþróttasamband Íslands tilkynnti hópinn í gær. Það var þó ekki það eina merkilega sem gerðist hjá Hafdísi í gær því hún gerði sér lítið fyrir og bætti eigið Íslandsmet í 60m hlaupi á Sprettmóti UFA. Fyrra metið var 7,68s en í gær hljóp hún á tímanum 7,64s. Til hamingju með Íslandsmetið Hafdís og gangi þér sem allra best í Zürich.
Við minnum á að RÚV mun sýna frá mótinu og því um að gera að fylgjast með hvenær Hafdís á að keppa.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.