Grunnskólinn í Hrísey og Giljaskóli sigurvegarar 1. maí hlaups

leikskolahlaup_litil_640

Um 350 hlauparar á öllum aldri tóku þátt í 1. maí hlaupi UFA sem fram fór í morgun.

Í skólakeppninni þar sem keppt er um hlutfallslega bestu þátttökuna sigraði Grunnskólinn í Hrísey í flokki fámennra skóla og Giljaskóli í flokki fjölmennra skóla. þessir sömu skólar báru sigur úr bítum í keppninni í fyrra og hefur greinilega skapast sterk hefð fyrir því í þessum skólum að fjölmenna í hlaupið því báðir skólar höfðu yfirburðastöðu gagnvart þeim skólum sem næstir komu.

Í 5 km hlaupi kom Stefán Viðar Sigtryggsson fyrstu í mark á 17:27, annar var Ágúst Bergur Kárason á 18:19 og þriðji var Gísli Einar Árnason á 18:45. Fyrst kvenna var Guðrún Nýbjörg Svanbergsdóttir á 20:59, önnur var Guðrún Arngrímsdóttir á 21:54 og þriðja var Bryndís María Davíðsdóttir á 22:39.

Hér má sjá tíma allra sem hlupu og úrslitin í skólakeppninni.

hrsey_400

Nemendur grunnskólans í Hrísey fagna sigri. Hríseyjarskóli vann í flokki fámennra með 88% þátttöku, í öðru sæti var Þelamerkurskóli með42% þátttöku og í þriðja sæti var Valsárskóli  með 18% þátttöku.

giljaskoli_400

Nemendur í Giljaskóla fagna sigri. Giljaskóli sigraði í flokki fjölmennra skóla, með 21% þátttöku. Í öðru sæti var Oddeyrarskóli með 7% þátttöku og í þriðja sæti var Glerárskóli með 5% þátttöku.

 


Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA