Grunnskólamót UFA í frjálsum fór fram dagana 19. - 22. maí. Mikiđ fjör var í Boganum ţar sem um 1.000 krökkum í 4.-7. bekk grunnskóla Akureyrarbćjar var bođiđ ađ koma ađ keppa í frjálsum íţróttum, auk ţeirra bćttist Ţelamerkurskóli í hópinn, mćtti einn daginn, og veitti stćrri skólunum góđa samkeppni.
Keppt var í spretthlaupi, hringhlaupi, langstökki, bođhlaupi og reipitogi. Mikiđ kapp var í krökkunum, allir stóđu sig mjög vel, bćđi í keppni og í stuđningsmannaliđum, og vonandi höfđu sem flestir gaman af.
Bćđi var um ađ rćđa einstaklingskeppni og keppni milli skóla í hverjum árgangi. Efstu 10 krökkum í hverri grein er bođiđ ađ ćfa frítt međ UFA út júní og fengu ţeir afhent sérstakt viđurkenningarskjal.
Glerárskóli vann stigakeppnina hjá 4. bekk, en Lundarskóli hjá 5., 6. og 7. bekk.
Lundarskóli vann einnig heildarstigakeppnina, líkt og í fyrra.
UFA og skólarnir hjálpuđust ađ viđ ađ halda mótiđ. Til viđbótar viđ ţjálfara og ađra liđsmenn UFA ţá komu góđir hópar krakkar úr 8-10. bekkjum til mćlinga ásamt ţví ađ íţróttakennarar og ađrir starfsmenn skólann gripu í mćlingar/skráningu og önnur tilfallandi verkefni ţegar á ţurfti ađ halda. Viđ hjá UFA viljum ţakka skólunum fyrir samstarfiđ um ţetta mót sem er virkilega skemmtilegt og gefandi. UFA ţakkar einning Akureyrarbć og Heilsueflandi samfélagi fyrir styrk til ađ halda mótiđ.
Gaman vćri ef sem flestir krakkar kćmu ađ ćfa frjálsar íţróttir međ UFA í sumar, búiđ er ađ birta sumarćfingatöfluna hér, en hún gildir frá og međ 8. júní nk. Fram ađ ţví gildir vetrar-/vorćfingataflan, sem skođa má hér.
Sumarleikar HSŢ verđa haldnir 5.-7. júní nk. og gaman vćri ađ mćta međ stóran og góđan hóp af nýjum iđkendum ţangađ, mótin hjá HSŢ eru oft einhver skemmtilegustu mót sumarsins. Nánari upplýsingar um mótiđ má finna hér: https://fri.is/wp-content/uploads/2026/03/Sumarleikar-2026-bodsbref.pdf athugiđ ađ skráningarfrestur er til ţriđjudagskvöldsins 3. júní kl. 22, ekki er hćgt ađ skrá sig á stađnum.
Nokkrar svipmyndir frá Grunnskólamótinu:
















