• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Goggi galvaski

Í gær hófst Stórhátíð Gogga galvaska sem er mót fyrir krakka 14 ára og yngri og haldið í Mosfellsbæ.  Fimm iðkendur hjá UFA taka þátt í mótinu og eru þau öll að standa sig með miklum sóma.

Þetta eru þau: Steinar Gauti, Ásgerður Jana, Auður Brynja, Agnes Eva og Heiðrún Dís.  Fóru þau öll á eigin vegum þar sem ekki var mögulegt að bjóða upp á ferð suður af hálfu félagsins. 

Í dag unnu tveir úr hópnum til verðlauna.  Auður náði silfri í kúluvarpi, í flokki stelpna 11-12 ára, með kasti upp á 9,01m og Agnes hampaði tvennum bronsverðlaunum í flokki telpna 13-14 ára, annars vegar í langstökki þegar hún stökk 4,84m og hins vegar í 80m grindahlaupi á tímanum13,68 sek.  Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!
Fleiri glæsilegir árangar litu dagsins ljós og m.a. varð Auður einnig í 5. sæti í spjótkasti, Ásgerður Jana komst í úrslit í 60m hlaupi (þess má geta að hún er á yngra ári í sínum flokki) og Heiðrún hljóp í úrslitum í 80m grindahlaupi.
Frekari úrslit má finna á síðunni www.mot.fri.is undir tenglinum ,,Stórhátíð Gogga galvaska".

Við óskum fimmmenningunum áframhaldandi velgengni á seinni degi mótsins. 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA