• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Góđur árangur UFA félaga á unglingalandsmóti

UFA – krakkarnir stóðu sig með prýði á landsmótinu. Kolbeinn Höður Gunnarsson nýliði í frjálsum kom, sá og sigraði. Hann vann til þriggja gullverðlauna í flokki 13 ára pilta, í 100 m hlaupi 800 m hlaupi og hástökki. Þá varð hann annar í langstökki og í silfursveit UFA í þessum aldursflokki. Auk hans voru í sveitinni Bjarki Kjartansson, Geir Vésteinsson og Magnús Már Sigurðarson. Andri Már Bragason og Bjarki Gíslason gerðu það heldur ekki endasleppt. Andri Már sigraði í 100 og 800 m hlaupum í flokki 14 ára pilta og varð annar í langstökki. Bjarki sem keppir í drengjaflokki sigraði í 800 m hlaupi og langstökki, varð annar í 100 m hlaupi og hástökki og í þriðja sæti í spjótkasti. Hjalti Björnsson hlaut annað sæti í spjótkasti í 14 ára flokknum og Magnús Aríus Ottósson varð annar í langstökki og þriðji í kúluvarpi í keppni 11 ára stráka. Þá varð Guðrún M. Jónsdóttir þriðja í keppni stúlkna í hástökki og spjótkasti, en hún hefur fram að þessu verið þekktari fyrir góðan árangur í blaki, og Tanja Freydís Leggett vann til silfurveðlauna í spjótkasti 11 ára stelpna. Aðrir sem hér eru ekki nefndir stóðu sig líka vel á mótinu en UFA átti 16 keppendur í Þorlákshöfn, 15 í frjálsum íþróttum og 1 í glímu, Þorlák Snæ Gunnarsson sem hampar bronsverðlaunum eftir mótið í flokki drengja 11 – 12 ára. Til hamingju með frá bæran árangur krakkar.
Öll úrslit mótsins í frjálsum íþróttum má nálgast á mótaforriti FRÍ og öll önnur úrslit á heimasíðu UMFÍ.


Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA