Heldur napurt var í við Mývatn í dag, hiti um 5-6°c og strekkingsvindur. En langhlauparar úr UFA létu það ekki á sig fá og náðu ágætum árangri í hlaupinu. Félagarnir Valur Þór Himarsson og Halldór Arinbjarnarson hlupu heilt maraþon og náðu ágætum árangri í kulda og trekki. Valur Þór var að hlaupa sitt fyrsta heila maraþon og lauk hlaupinu á 3:37:02 félagi hans Halldór átti ekki eins góðan dag og var 7 mínútum lengur. Í hálfu maraþoni sigraði Rannveig Oddsdóttir í kvennaflokki og hljóp á 1:26:10 og Sigríður Einarsdóttir var önnur á 1:37:29 en hún var að hlaupa sitt fyrsta hálfa maraþon. Þær stöllur skipuðu sveit með Gísla Sverrissyni og sigraði sveitin sveitakeppnina í hálfu maraþoni. Tveir nýliðar sem tóku þátt í hlaupanámskeiði langhlauparadeildarinnar nú á vordögum kepptu í 10 km. hlaupi og gerði önnur þeirra, Rakel Dögg sér lítið fyrir og náði þriðja sæti í kvennaflokki. Hér má lesa meira um hlaupið.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.