Annað vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun. Hlauparar létu norðanblástur og snjó ekki stoppa sig og mættu 25 hlauparar til leiks. Hörð barátta var um forystuna en Bjartmar Örnuson hafði Stefán Sigtryggsson á endasprettinum. Bjartmar hljóp á 37:08 og Stefán á 37:15. Þriðji maður í mark var Bjarki Gíslason á 41:23 og fast á hæla honum kom fyrsta kona, Rannveig Oddsdóttir á 41:35. Önnur kona var Sigríður Einarsdóttir á 45:07 og þriðja var Björk Sigurðardóttir á 50:45. Hér má sjá tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppninni eftir tvö fyrstu hlaupin.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.