• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Góð þátttaka í fyrsta vetrarhlaupinu

Fyrsta vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun við bestu aðstæður, auðar götur, svolítil rigning en nánast logn. Hátt í fjörutíu hlauparar voru mættir til leiks og hlupu að venju 10 km hring frá Bjargi. Rannveig Oddsdóttir kom fyrst í mark á 39:21 og var aðeins sekúndu frá því að slá eigið brautarmet sett í október 2007. Á hæla hennar kom Stefán Viðar Sigtryggsson á 39:23 -en hann mun vera að "hvíla" fyrir járnkallinn um næstu helgi. Annar karla var Finnur Dagsson á 40:31 og þriðji var Snæþór Aðalsteinsson á 41:25. Önnur kvenna var Sigríður Björg Einarsdóttir á 45:07 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 45:26. Mjótt var á mununum í liðakeppninni og aðeins þriggja mínútna munur á samanlögðum tíma fyrstu fjögurra sveita svo það lítur út fyrir æsispennandi stigakeppni í vetur. Hér má sjá tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppni einstaklinga og liða eftir fyrsta hlaupið. 

 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA