• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Góð þátttaka í Akureyrarhlaupi

Um 250 manns tóku þátt í Akureyrarhlaupi sem fram fór í morgun. Flestir voru þátttakendur í 10 km. eða rúmlega hundrað. 40 hlupu hálft maraþon og 70 tóku þátt í 3 og 5 km. skemmtiskokki. Auk þess tókuk 27 manns þátt í þríþraut. Ufa þakkar hlaupurum þátttökuna, starfsmönnum vel unnin störf og styrktaraðilum fyrir rausnarlegan stuðning við hlaupið.

Úrslit í öllum vegalengdum verða birt hér á síðunni von bráðar.
En hér má sjá nöfn fyrstu karla og kvenna í lengri hlaupunum.

21,1 km. Karlar
Bergþór Ólafsson
Stefán Viðar Sigtryggsson
Atli Steinn Sveinbjörnsson

21,1 km. Konur
Rannveig Oddsdóttir
Sigríður Einarsdóttir
Heiðrún Edda Guðsteinsdóttir

10 km. Karlar
Óskar Jakobsson
Ágúst Geir Ágústsson
Mano Van Harin

10 km. Konur
Sigrún Birnar Norðfjörð
Birgitta Guðjónsdóttir
Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA