• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Góð stemning í Gamlárshlaupi UFA

Þessar prúðbúnu dömur svifu um bæinn í morgun.
Þessar prúðbúnu dömur svifu um bæinn í morgun.

Hátt í hundrað manns tóku þátt í gamlárshlaupi og göngu UFA sem fram fór í morgun. Veður var gott en hlaupafæri fremur erfitt sökum hálku. Hlauparar og göngufólk lét það samt ekki á sig og fá og þaut um göturnar, margir hverjir prúðbúnir, eins og þessar laglegu kvinnur sem báru sigur úr bítum í búningakeppninni í ár. -Ásamt Elvis Presley sem einnig heiðraði okkur með nærveru sinni en festist ekki á filmu.

Fleiri myndir úr hlaupinu má finna hér.

Í 5 km hlaupi skutu krakkarnir fullorðna fólkinu ref fyrir rass og voru sigurvegarar í bæði karla og kvennaflokki 10 ára gamlir. Ólíver Einarsson kom fyrstu í mark á 26:09, annar var Hákon Logi á 26:17 og þriðji var Þórður Sigmundsson á 27:37. Aþena Ómarsdóttir varð fyrst stúlkna og kvenna á 27:23, önnur var Hanna Þórey á 27:25 og þriðja var Hólmfríður Indriðadóttir á 27:42.

Í 10 km hlaupi sigraði Þorbergur Ingi Jónsson á 34:03, annar var Bjartmar Örnuson á 36:37 og þriðji var Finnur Friðriksson á 41:09. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 41:35, Anna Berglind Pálmadóttir var önnur á 42:23 og þriðja var Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir á 47:24.

Að hlaupi loknu var boðið upp á súpu frá RUB23, og dregnir út glæislegir vinningar frá Bjargi, Björgunarsveitinni Súlum og Nóa Síríus.

Hér má sjá tíma allra sem hlupu.

 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA