Um 70 manns tóku þátt í Gamlárshlaupi og göngu UFA í morgun. Veður var gott en fremur hált.
Í 5 km hlaupi röðuðu þrír ungir drengir sér í fyrstu sætin. Fannar Óli Friðleifsson (15 ára) var fyrstur á tímanum 21:46, annar var Ragúel Pinó (12 ára) úr UFA á 22:13 og þriðji var Friðleifur Kristinn Friðleifsson (12 ára) á 25:22. Fyrst kvenna í 5 km hlaupi var Ásta Heiðrún Jónsdóttir á 26:12, önnur var Linda Ársælsdóttir á 28:26 og þriðja var Anna Hafþórsdóttir á 30:22.
Í 10 km hlaupi kom Þorbergur Ingi Jónsson úr UFA fyrstur í mark á 34:59, annar var Friðleifur Friðleifsson á 38:07 og þriðji
var Baldvin Þór Magnússon á 41:07, en hann er aðeins 14 ára gamall. Í kvennaflokki kom Sigríður Björg Einarsdóttir úr UFA fyrst í mark á 46:37, önnur var Sonja Sif Jóhannsdóttir úr UFA á 47:36 og þriðja var Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir á 47:55.
Hér má sjá tíma allra sem hlupu.
Að hlaupi loknu var boðið upp á dýrindis súpu frá RUB23 ásamt brauði frá Bakaríinu við brúna og dregin út verðlaun frá Bjargi, Nóa Síríus og Björgunarsveitinni súlum. UFA þakkar styrktaraðilum fyrir rausnarlegan stuðning við hlaupið, hlaupurum og göngufólki fyrir þátttökuna og starfsmönnum fyrir þeirra framlag.