• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Góð sala á happdrættismiðum FRÍ á norðurlandi

Góð sala hefur verið í happdrættismiðum FRÍ á norðurlandi og er UFA það félag innan FRÍ sem selt hefur flesta miða. Þökkum við þann góða árangur samhentu átaki okkar fólks í sölunni, en ekki síður jákvæðu viðhorfi samfélagsins í okkar garð. Góð frammistaða okkar íþróttafólks undanfarin misseri hefur vakið verðskuldaða athygli.

28. október fer fram milliuppgjör í happdrættinu og þá kemur í ljós hvaða félög fá 35% af söluverðmætinu í sinn vasa í stað 30% -en þeim félögum sem flesta miða hafa selt verður umbunað með þeim hætti. Það er því til mikils að vinna að halda sölunni áfram, mörg félaganna virðast hafa farið rólega af stað og því er ekki sjálfgefið að við höldum því forskoti sem við höfum náð. Við þökkum öllum þeim sem nú þegar hafa sýnt hug sinn til frjálsíþrótta í verki og keypt miða og hvetjum alla þá sem eiga eftir að kaupa miða að hafa samband við okkur.

Tölur yfir útsenda happdrættismiða til félaganna:
UFA 1100
HSK 1000
Ármann 800
ÍR 700
FH 500
UMSS- U.Í. Smári 500
Steinunn Arnljótsdóttir 400
Breiðablik 400
Afturelding 400
UMSE 160
HSH 150
Fjölnir 150
UÍA 100
Blaksamband Íslands 100 

 
 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA