Nú um helgina fór fram Stórmót ÍR í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Keppendur UFA stóđu sig afar vel ađ vanda og mokuđu inn verđlaununum. Helstu úrslit voru ţessi:
Hafdís Sigurđardóttir, sem var kjörin Íţróttamađur Akureyrar í síđustu viku, kom sá og sigrađi í 60m hlaupi, 400m hlaupi og langstökki kvenna. Hafdís bćtti sinn persónulega árangur og setti nýtt mótsmeti í bćđi 60m hlaupi á tímanum 7,64s og í 400m hlaupi á tímanum 54,36. Ţá stökk hún 6,15m í langstökki og varđ önnur í 60m grindarhlaupi á tímanum 9,01s en ţess má geta ađ Hafdís hefur ekki keppt í ţessari grein í mörg ár ;)
Agnes Eva Ţórarinsdóttir sigrađi í ţrístökki kvenna međ stökk upp á 11,16m og varđ önnur á eftir Hafdísi í langstökkinu međ stökk upp á 5,34.
Ásgerđur Jana Ágústdóttir sigrađi í kúluvarpi kvenna er hún varpađi kúlunni 11,72m og varđ önnur í hástökki er hún stökk yfir 1,50m. Ţá varđ hún ţriđja í langstökki međ stökk upp á 5,28m og ţriđja í 60m grindarhlaupi á tímanum 9,51s.
Kolbeinn Höđur Gunnarsson sigrađi í 60m, 200m og 400m hlaupi karla. Kolbeinn setti nýtt mótsmet í bćđi 60m hlaupi (7,01s) og 200m hlaupi (21,79) og nálgast hann óđum Íslandsmetiđ í sínum aldursflokki (Piltar 18-19 ára) en ţađ er 21,73s. Tími Kolbeins í 400m hlaupinu var 48,45s.
Stefán Ţór Jósepsson lenti í ţriđja til fjórđa sćti í hástökki karla međ stökk yfir 1,70m.
Rún Árnadóttir sigrađi stangarstökkiđ í flokki stúlkna 16-17 ára er hún vippađi sér yfir 2,60m. Ţá varđ hún önnur hástökki međ stökk yfir 1,59m.
Selma Líf Ţórólfsdóttir varđ ţriđja í hástökki stúlkna 16-17 ára međ stökk yfir 1,59m líkt og Rún gerđi en Selma fór yfir 1,54m í ţriđju tilraun en Rún í annarri.
Berglind Björk Guđmundssdóttir var í fyrsta sćti í 800m hlaupi á tímanum 2:40,64s og önnur í 1500m hlaupi á tímanum 5:29,07.
Sesselja Dís Hreiđarsdóttir varđ önnur í kúluvarpi stúlkna 15 ára er hún varpađi kúlunni 9,85m.
Ragúel Pino Alexandersson kom sá og sigrađi í 7 greinum af ţeim 8 sem hann keppti í en hann keppir í flokki 13 ára pilta. Hann sigrađi í: 60m hlaupi á tímanum 8,25s, 200m hlaupi á tímanum 26,87s, 600m hlaupi á tímanum 1:41,02, 60m grindarhlaupi á tímanum 10,10s, kúluvarpi međ kast upp á 10,04m, langstökki međ stökk upp á 5,02m og stangarstökki međ stökk yfir 2,65m. Ţá varđ hann í öđru sćti í hástökki međ stökk yfir 1,47m.
Kolbeinn Fannar Gíslason sem einnig keppir í flokki 13 ára pilta sigrađi vin sinn Ragúel í hástökki er hann vippađi sér yfir 1,53m. Ţá varđ hann annar í 60m hlaupi á tímanum 8,58s, langstökki međ stökk upp á 4,84m og í 60m grindarhlaupi á tímanum 10,62s.
Ragnar Óli Ragnarsson sem keppir í flokki 11 ára pilta sigrađi kúluvarpiđ er hann varpađi kúlunni 8,94m og varđ annar í 60m hlaupi á tímanum 9,53s, í langstökki međ stökk upp á 3,90m og í hástökki međ stökk yfir 1,18m.
Sannarlega glćsilegur árangur hjá okkar fólki á ţessu mót! Innilega til hamingju keppendur og ţjálfarar!!!
Öll úrslit má finn á: http://www.ir.is/media/misc/StormotIR2014yfirlit.htm