• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Glæsilegu Unglingalandsmóti lokið

Fjölmennasta Unglingalandsmóti til þessa lauk á miðnætti í gærkvöldi með veglegri flugeldasýningu. 
Þátttakendur frá UFA héldu áfram að standa sig vel tvo seinni dagana og hafa verið félaginu til sóma nú sem áður. 
Ásgerður Jana Ágústsdóttir sigraði spjótkast 16-17 ára með 40,22m og einnig hástökkið en hún stökk 1,60m, hún varð svo í 3.sæti í kringlukasti með 27,90m.
Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði 100m hlaup 16-17 ára á 10,99sek
Berglind Björk Guðmundsdóttir varð í 1.sæti í 800m hlaupi 14 ára á 2:30,73sek
Stefán Broddi Sigvaldason sigraði 80m hlaup 13 ára á 10,36sek
Líney Lilja Þrastardóttir varð í 2.sæti í 60m hlaupi 11 ára á 9,43sek og í 3.sæti í langstökki, stökk 4,18m
Sesselja Dís Heiðarsdóttir varð í 2.sæti í kúluvarpi 13 ára með 10,44m
Ragúel Pino varð í 3.sæti í 60m hlaupi á 9,17sek
Þorvaldur Ágúst Jónsson varð í 3.sæti í 100m hlaupi 14 ára á 12,47sek
Melkorka Ýrr Yrsudóttir varð í 3.sæti í spjótkasti 14 ára með 30,16m
Í 4x100m boðhlaupi 13 ára stráka sigraði sveit UFA á 58,05sek
Sveitir UFA hjá 11 ára strákum og 14 ára stelpum urðu báðar í 2. sæti í 4x100m. Einnig var hægt að keppa í boðhlaupum í blönduðum sveitum og var t.d. Líney Lilja í Svölu sveitinni en sú sveit sigraði boðhlaupið hjá 11 ára stelpum.  
í lok mótsins var svo tilkynnt að Unglingalandsmót árið 2015 mun verða haldið á Akureyri. Að ári liðnu verður mótið á Höfn í Hornafirði og 2014 á Sauðárkróki.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA