UFA hvetur unga sem aldna til að kveðja jólasteikina og gamla árið með hressandi útiveru í góðum félagsskap í Gamlárshlaupi og göngu UFA á gamlársdag.
Rás- og endamark er við líkamsræktarstöðina Bjarg.
10 km ganga fer af stað kl. 10:00, 5 og 10 km hlaup og 5 km ganga kl. 11:00.
Heit súpa, heitir potar og sjóðheit útdráttarverðlaun að hlaupi loknu.
Veitt verða verðlaun fyrir flottasta liðið í búningakeppni, 2-5 saman í liði.
Þátttökugjald 1000 kr fyrir börn og 1500 kr fyrir fullorðna, fjölskyldugjald kr. 4000.
Nánari upplýsingar hér.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.