Gamlárshlaup UFA verður hlaupið frá Bryggjunni kl. 11.00 á Gamlársdag. Hlaupið verður meðfram sjónum 7 km leið að flugvellinum og til baka. Að venju verða veitt verðlaun fyrir bestu búningana, hröðustu hlaupara í karla og kvennaflokki og útdráttarverðlaun.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.