Gamlárshlaup og ganga UFA fer fram að venju á gamlársdag. Við hvetjum alla bæjarbúa til að taka forskot á áramótaheitið og ganga eða hlaupa með okkur. Hlaupaleiðirnar eru breyttar frá fyrra ári og hvetjum við þátttakendur til að kynna sér leiðina áður en farið er af stað. Hér má sjá kort af leiðunum og nánari upplýsingar um hlaupið.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.