Á föstudaginn héldu 11 krakkar ástamt þjálfar suður á MÍ 12-14 ára. Fyrri keppnisdegi er lokið og sá seinni í þann mund að hefjast.
Vel gekk hjá krökkunum í gær og má þar helst nefna að Ásgerður Jana Ágústsdóttir gerði sér lítið fyrir og vann hástökk í 12 ára flokki með stökki upp á 1,40 m, einnig komst hún í úrslit í 60 m hlaupi og endaði í 7. sæti.
Elise Marie Valjaots náði bronsi í kúluvarpi, í flokki 14 ára, þegar hún varpaði kúlunni 8,44 m.
Bjarki Kjartansson háði harða baráttu í hástökki sem endaði þannig að hann deildi 3-5. sæti með 1,40 m í flokki 13 ára.
Við óskum krökkunum til hamingju með góðan fyrri keppnisdag og sendum þeim baráttukveðjur fyrir daginn í dag.