Flestir sem hlaupa með skokkhópi byrja rólega jafnvel sér til heilsubótar. Síðan með auknu þoli langar marga til að æfa fyrir ákveðnar vegalengdir (t.d. 10 km eða maraþon) og fara þá að taka hlaupin alvarlegar. Fólk telur kílómetrana sem það hleypur (magn) en hefur oft á tíðum minni möguleika á því að fylgjast með hvort hraði (ákefð) æfinganna sé réttur. Rétt samspil magns og ákefðar er hins vegar nauðsynlegt til þess að hámarka árangur. Í fyrirlestrinum verður fjallað um nokkrar aðferðir til þess að meta ákefð allt frá einföldum aðferðum eins og huglægum áreynsluskölum upp í tæknilegri aðferðir eins og notkun púlsmæla.
Sigurbjörn Árni Arngrímsson lauk doktorsprófi í íþróttafræði árið 2001 með áherslu á áreynslulífeðlisfræði (þjálfunarlífeðlisfræði) og hefur starfað síðan við Íþróttafræðasetur Háskóla Íslands á Laugarvatni sem prófessor í íþróttafræði. Sigurbjörn er margfaldur Íslandsmeistari millivegalengda- og langhlaupum allt frá 4x400 m boðhlaupi upp í hálft maraþon og var landsliðsmaður í frjálsíþróttum frá 1997-2011. Utan þess að þjálfa sjálfan sig frá 2004 hefur hann komið að þjálfun hlaupara eins og Þorbergs Inga Jónssonar og Kára Steins Karlssonar auk þess sem hann þjálfaði skokkhóp Flugleiða um árabil.
Aðgangseyrir kr. 800 fyrir félaga í UFA Eyrarskokki og iðkendur UFA, 1200 kr fyrir aðra.