• UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Frjálsíţróttaskóli UMFÍ

Dagana 12-16. júlí nk. verður Frjálsíþróttaskóli UMFÍ haldinn á Akureyri en UFA og UMSE sjá um skólann. Frjálsíþróttaskóli UMFÍ er ætlaður ungmennum á aldrinum 11–18 ára. Ungmennin koma saman á hádegi á mánudegi en skólanum lýkur á hádegi á föstudegi í sömu viku. Aðaláhersla er lögð á kennslu í frjálsum íþróttum. Auk frjálsra íþrótta er farið í sund, leiki, óvissuferðir og haldnar verða kvöldvökur. Ungmennin borga 15.000 þúsund krónur í þátttökugjald en innifalið í verðinu er kennsla, fæði og gisting alla dagana.

Skráning í skólann fer fram á heimasíðu UMFÍ: http://umfi.is/umfi09/veftre/skraning_i_frjalsithrottaskolann/

Heimasíða skólans á Akureyri er: http://sites.google.com/a/umse.is/frjalsithrottaskoli/ (síðan er enn í vinnslu)

 


Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA