Í apríl býður UFA Eyrarskokk öllum að æfa frítt með hópnum. Æfingar eru frá Átaki við Strandgötu og hvetjum við alla sem hafa verið að hugsa um að prófa að mæta að kíkja á okkur. Það hefur verið góð mæting á æfingar undanfarið og það er mikil breidd í hópnum, sumir skokka 5-6 km á æfingu á meðan aðrir fara lengra og taka sprett og tempóæfingar.