• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Fréttir af aðalfundi

Aðalfundur UFA var haldin í Íþróttahöllinni í gærkvöld.

Jón Pálsson gjaldkeri UMFÍ ávarpaði fundinn og veitti þjálfurunum Unnari og Gísla starfsmerki UMFÍ fyrir vel unnin störf í þágu hreyfingarinnar.

Ný stjórn var kjörin. Fjórir gengu úr stjórn, þau Fjalar Freyr Einarsson, Hulda Ólafsdóttir, Helgi Þorbjörn Svavarsson og Sigurður Hrafn Þorkelsson. Gunnar Gíslason, Rannveig Oddsdóttir og Elfar Eiðsson gáfu kost á sér áfram og Þröstur Már Pálmason, Gyða Árnadóttir, Þórólfur Sveinsson og Theódóra Kristjánsdóttir koma ný inn í stjórn.

Tillaga um að leggja niður Afreks- og styrktarsjóð UFA í núverandi mynd og stofna þess í stað tvo nýja sjóði, Afreksmannasjóð UFA og Verkefnasjóð UFA var samþykkt, ásamt reglugerð um skiptingu lottótekna.

Tillaga um að stofna öldungadeild fyrir 45 ára og eldri innan félagssins var samþykkt. Einn megintilgangur með stofnun hennar er að hvetja til þátttöku á Landsmótum UMFÍ 50+ auk þess sem það er talið styrkja starf félagsins að fá þennan aldurshóp inn.

Samþykkt var að sækja um að halda Landsmót 50+ 2013 og Unglingalandsmót 2015.

Lögð voru fram drög að starfsreglum fyrir meistaraflokkstáð og þrír fulltrúar kjörnir í stjórn þess, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Þórunn Erlingsdóttir og Svanhildur Karlsdóttir.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA