Hin árlega úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrarbæjar fer fram í hófi sem haldið verður í Íþróttahöllinni þriðjudaginn 27. desember kl 16:15 þar sem afhent verða viðurkenningarskjöl Íþróttaráðs Akureyrar til hvers félags fyrir sig. Árangur akureyrskra íþróttamanna var góður á árinu. Samkvæmt upplýsingum sem borist hafa til stjórnar sjóðsins hafa 162 íslandsmeistaratitlar unnist á árinu og einnig voru margir Akureyringar valdir til leiks með landsliðum í hinum ýmsu íþróttagreinum. Það er von Íþróttaráðs að þessir glæsilegu afreksmenn, þjálfarar þeirra og forystumenn íþróttahreyfinga á Akureyri sjái sér fært að koma til athafnarinnar. Góðar veitingar verða fram bornar í boði Akureyrarbæjar.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.