• hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Frábćr árangur hjá íţróttamönnum UFA

Árangur hópsins frá UFA sem tók þátt í frjálsíþróttahluta Reykjavík International 2013 sem fram fór í dag var hreint frábær. Það bættu allir sinn besta árangur og komust allir keppendur UFA utan einn á verðlaunapall í einni eða fleiri greinum. Hafdís Sigurðardóttir sigraði langstökkið og varð önnur í 60m hlaupi, Rannveig Oddsdóttir sigraði í 3000m hlaupi og það gerði Þorbergur Ingi Jónsson einnig í karlaflokki, Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð önnur í kúluvarpi, Rakel Ósk Björnsdóttir varð önnur í hástökki og 400m hlaupi, Berglind Björk Guðmundsdóttir varð þriðja í 600m hlaupi í meyjaflokki, Bjarki Gíslason sigraði stangarstökkið örugglega á nýju Akureyrarmeti 5,20m og Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði 400m hlaupið á nýju Íslandsmeti í 18-19 ára flokki pilta, en hann hljóp á 48,32 sek og þá varð hann annar í 60m hlaupi. Þetta er eins og áður sagði frábær árangur hjá hópnum og lofar góðu fyrir framhaldið. Öll úrslit á mótinu má nálgast hér .

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA