Of langt mál er að telja upp alla verðlaunahafa þar sem þið stóðuð ykkur svo vel. 34 gull, 19 silfur og 12 brons. Hjalti Björnsson var með 6 gull í 100m, 400m, 800m, langstökki, kúluvarpi og spjóti, Agnes Eva með 4 í hástökki, langstökki, kringlu og spjóti, Snorri Björn með 4 í 100m, 400m, langstökki og spjóti, Þorsteinn Helgi einnig með 4 gull í 110 grind, langstökki, kringlukasti og spjóti, Bjarki Kjartans með 3 gull í hástökki, langstökki og spjóti, og einnig Elvar Örn í langstökki, stöng og spjóti, Auður Brynja með 2 gull í kúlu og spjóti og einnig Bjartmar í 100 og 400 m, einu gulli náðu Elise í hástökki, Sindri í 800m , Rún í langstökki, Örn Dúi í hástökki, Magnús Már í 800m og Hrafnkatla í 60 m hlaupi. Sannarlega glæsilegur árangur. Bjarki Kjartansson átti stigahæsta afrekið af drengjunum.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.