Í kvöld, mánudag 10. mars, stendur UFA fyrir firmakeppni í frjálsum í Boganum. Keppnin er haldin til fjáröflunar fyrir utanlandsferð elstu iðkendanna og hafa keppendur fengið fyrirtæki í bænum til að heita á sig. Keppnin hefst kl. 18:00.
Á fimmtudagskvöldið standa frjálsíþróttakrakkarnir fyrir Bingói sem einnig er fjáröflun fyrir utanlandsferðina. Spilað verður í kaffiteríu íþróttahallarinnar og hefst bingóið kl. 20:00.