• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Firma-keppni UFA

Í síðustu viku héldu iðkendur UFA firmakeppni í frjálsum íþróttum.  Það voru 20 fyrirtæki á Akureyri sem styrktu keppnina en hún fór þannig fram að dregin voru saman fyrirtæki og fulltrúi þess úr hópi iðkenda.  Keppni var háð í þremur greinum; 60 m hlaupi, langstökki og kúluvarpi og til að allir ættu jafna möguleika voru úrslitin reiknuð eftir alþjóðlegri stigatöflu sem tekur tillit til aldurs og kyns. 

Sigurvegari varð fyrirtækið Deloitte en fulltrúi þess var Bjarki Gíslason UFA sem hlaut 1026 stig fyrir 60m hlaup. 
Í 2. sæti lenti Joe´s sem Hafdís Sigurðardóttir HSÞ keppti fyrir en hún hlaut 928 stig fyrir langstökk.
Í 3. sæti varð Svefn og heilsa en þeirra keppandi var Magnús Örn Valsson USAH með 907 fyrir kúluvarp.
 Við óskum sigurvegurunum til hamingju og þökkum öllum þeim fyrirtækjum sem styrktu okkur kærlega fyrir.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA