Á föstudaginn fer rúmlega 20 manna hópur keppenda UFA til Reykjavíkur til að keppa á silfurleikum ÍR. Farið verður frá Hömrum kl 16:00. Gist verður í Tónabæ. Keppni hefst kl 9:00 á laugardagsmorgun og er lokið upp úr kl 16. Áætluð heimkoma krakkanna er um 23 á laugardagskvöld. Kostnaður við ferðina er kr 10.000. Innifalið er rúta, gisting, morgunmatur, vallanesti,kvöldmatur á laugardag svo og keppnisgjald. Krakkarnir þurfa að taka með sér nesti fyrir föstudaginn auk þess sem þarf fyrir svefn og keppni og sundföt. Kostnað vegna ferðarinnar má leggja inn á reikning 566-26-7701, kt. 520692-2589, setja inn athugasemd v. silfurleika og senda staðfestingu á sob@simnet.is
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.