• hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Lokahlaup vetrarhlaupanna

mars08_223_120Fimmtán manns tóku þátt í síðasta vetrarhlaupi vetrarins sem fram fór í morgun. Halldór Halldórsson kom fyrstur í mark á tímanum 42:44, Starri Heiðmarsson var annar á 42:50 og Heimir Guðlaugsson þriðji á 42:58. Sigríður Einarsdóttir var fyrst kvenna á 43:41, Rannveig Oddsdóttir var önnur á 45:25 og Björk Sigurðardóttir var þriðja á 47:37. Að hlaupi loknu var boðið til lokahófs á Bjargi þar sem veitt voru verðlaun fyrir stigakeppnina, viðurkenningar fyrir ástundun og framfarir og útdráttarverðlaun frá styrktaraðilum hlaupsins, Ljósgjafanum/Siemenns, Halldóri Ólafssyni úr og skartgripir og Bjargi.

Hér má sjá úrslitin í öllum hlaupunum og stigakeppninni.


Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA