• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Bjarki óheppinn

Bjarki, sem er staddur í Belgrad í Serbíu, varð fyrir því óláni að stangirnar hans skiluðu sér ekki eftir flugið frá London til Belgrad á laugardagin.  Við höfum fengið fregnir af að þær hafi fundist aftur en vitum ekki hvort þær séu þá komnar til skila eða séu á leiðinni.  Bjarki á ekki að keppa í stangarstökki fyrr en á morgun og vonum við að stangirnar verði búnar að skila sér í tæka tíð!
Klukkan 16:00 í dag að serbneskum tíma mun Bjarki keppa í undanriðlum í 110m grindahlaupi.  Það er ekki eins heitt í dag, einungis 30° gráður, en hitinn hefur verið í kringum 40° gráður undanfarið.  Við sendum Bjarka baráttukveðjur í hitann!


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA