Bjarki sigraði í þrístökki, stökk 13,84 m og í stangarstökki þar sem hann stökk 4,20 m og fékk silfur í 60 m grindahlaupi með 8,84 sek í flokki pilta 17-18 ára, aðrir verðlaunahafar dagsins voru Örn Dúi Kristjánsson brons í 60 m grind 9,55 sek og þrístökki 11,56 m í flokki sveina 15-16 ára. Bjartmar brons í 400 m á 51,68 sek, Elvar Freyr Pálsson brons í 60 m grind 10,84 sek og Kristján Ingi Rúnarsson brons í þrístökki með 11,35 m og sveit UFA fékk silfur í 4x400 m hlaupi á tímanum 3:39,38 mín í flokki ungkarla 19-22 ára. Til hamingju með árangurinn strákar.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.