• UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Bikarlið Norðurlands í öðru sæti í Bikarkeppni FRÍ

Í dag fór fram Bikarkeppni FRÍ í Laugardalshöll. UFA ásamt UMSE, UMSS og HSÞ sendu frá sér sameinað lið undir nafninu Bikarlið Norðurlands. Keppnin var jöfn og spennandi, einungis 4 stigum munaði á á fyrsta og öðru sætinu en lið ÍR sigraði með 145 stig en bikarlið Norðurlands var með 141 stig. Lið FH varð í þriðja sæti með 132 stig.  

Helstu úrslit okkar fólks á mótinu voru eftirfarandi:
Hafdís sigraði bæði 60m hlaupið og langstökkið. 
Kolbeinn Höður sigraði bæði 200m og 400m hlaupið.
Bjarki sigraði í þrístökki og varð þriðji í langstökki.
Steinunn Erla varð þriðja í 400m hlaupi.
Rakel Ósk varð önnur í 800m hlaupi.
Þorbergur Ingi varð annar í 1500m hlaupi.
Ásgerður Jana sigraði kúluvarpið og varð önnur í 60m grindarhlaupi.
Anges Eva varð önnur í þrístökki.
Arna Ýr varð þriðja í stangarstökki. 

Þá sigraði Bikarlið Norðurlands í 4*400m hlaupi bæði í kvenna og karlaflokki. 

Glæsilegur árangur hjá Bikarliði Norðurlands! Til hamingju með annað sætið :)


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA