Brottför frá Boganum á föstudaginn eftir hádegi (nánari tímasetning hjá Unnari s. 868-4547) og við gistum í Laugarnesskóla. Keppnin er á sunndeginum frá kl. 13 - 16:30 og leggjum við af stað heim strax að henni lokinni. Á laugardeginum er fullorðins-bikarkeppnin og við ætlum að fylgjast með henni og styðja okkar lið. Um kvöldið borðum við saman og brösum eitthvað skemmtilegt (t.d. bíó eða keila). UFA borgar gistingu, rútu og keppnisgjald fyrir alla svo eftir stendur bara matur. Við verðum með morgunmat og vallarnesti báða dagana fyrir krakkana sem og kvöldmat á laugardaginn og mat í Borganesi á leiðinni heim. Þeir sem vilja vera með í þessum mat borga 3000/3500kr við brottför.
Helsta sem taka þarf með: -íþróttaföt og gaddaskó -sundföt og handklæði -vindsæng, svefnpoka og kodda - nesti á leiðinni suður -vasapening fyrir auka nesti/mat og afþreyingu á lau ef það er áhugi (keila, bíó t.d.).
Að lokum væri rosalega gott ef eitthvað foreldri væri til í að koma með okkur sem fararstjóri.
Endilega spyrjiði ef eitthvað er óljóst Kv. Unnar (868-4547) og Heiðrún (848-2069)