Ásgerður Jana Ágústsdóttir hefur nú lokið keppni á fyrri degi í sjöþrautinni á Norðurlandamótinu í fjölþrautum í Sandnes í Noregi. Henni hefur gengið frábærlega vel í dag, er í 6.sæti í sínum aldursflokki af 11 keppendum, með 2.777 stig eftir fyrri dag.
Árangur hennar í dag var sem hér segir; 100m grindahlaup 16,21sek
hástökk 1,64m, kúluvarp 12,06m og 200m hlaup 27,88sek.
Með þessum árangri er hún að bæta sig í öllum greinunum nema 200m hlaupinu, sem er frábært hjá henni.
Ásgerður Jana keppir í flokki 17 ára og yngri en hún er 16 ára. Á morgun keppir hún svo í langstökki, spjótkasti og 800m hlaupi.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.