Ásgerður Jana í 6. sæti á NM

Þá hefur Ásgerður Jana lokið keppni í sjöþrautinni á Norðurlandamóti unglinga í fjölþrautum, hún fékk 4.495 stig og varð í 6. sæti í flokki 17 ára og yngri. Í dag kastaði hún spjótinu 34,51m, stökk 4,94m í langstökki og hljóp 800m á 2:36,58sek. Flottur árangur hjá Ásgerði Jönu á stórmóti.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA