Áramót Fjölnis

Kolbeinn Höður Gunnarsson var eini keppandi UFA á Áramóti Fjölnis sem haldið var í Laugardalshöllinni í gær 29.des. Kolbeinn gerði sér lítið fyri og sigraði 200m hlaup karla á sínum besta tíma innanhúss, 22,65 sek. og varð svo í 2.-3.sæti í 60m hlaupi á 7,36sek. Flott byrjun á innanhússkeppnistímabilinu hjá Kolbeini, til hamingju með það.

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA