UFA hélt sitt árlega Akureyrarmót síðastliðna helgi. Nú var mótið með nýju sniði þannig að öllum var heimil þátttaka og komu keppendur víðsvegar að af landinu.
Mótið hófst í blíðskaparveðri kl. 10 á laugardagsmorguninn með því að yngstu keppendurnir kepptu í Krakkafrjálsum. Það er liðakeppni í þrautabraut byggð upp á frjálsíþróttum. Þetta var mjög skemmtileg keppni þar sem gleðin og spennan var allsráðandi. Eldri keppendur hófu keppni um hádegi og bar þar helst til tíðinda að 40 ára gamalt Akureyrarmet féll þegar Bjarki Garðarsson UFA kastaði sleggjunni 40,86 metra. Hilmar Örn Jórunnarson UFA setti Íslandsmet í 12 ára flokki í sömu grein þegar hann kastaði 35,22 m og Freydís Anna Jónsdóttir setti Akureyrarmet í sleggju með kasti uppá 37,32 m. Um önnur úrslit mótsins má lesa á mótaforrit FRÍ - fri.is.
Um stigakeppni var að ræða milli félaganna og var oft mjótt á munum. Fjölmennustu liðin á mótinu börðust um bikarana sem í boði voru í hverjum aldursflokki fyrir sig og í heildarstigakeppninni. Þó má geta þess að jafnræðis var gætt við stigaútreikning þannig að einungis tveir keppendur frá hverju liði gátu gefið stig. Úrsliitin voru eftirfarandi:
11 - 12 ára: 1. sæti UFA með 250,5 stig, 2. sæti UMSS með 244 stig, 3. sæti UMSE með 156,6 stig, 4.sæti UÍA með 91 stig og í 5. sti Umf. Narfi með 8 stig.
13 - 14 ára: 1. sæti UMSE með 266,5 stig, 2. sæti UFA með 243,5 stig, 3. sæti UMSS með 237 stig, 4 sæti, UÍA með 90 stig, 5. sæti Breiðablik með 56 stig og í 6. sæti Umf. Selfoss með 18 stig.
Konur og karlar: 1. sæti UFA með 384 stig, 2. sæti UMSS með 364 stig, 3. sæti Umf. Selfoss með 148 stig, 4. sæti UMSE með 117 stig, 5. sæti USAH með 39 stig, 6. sæti Umf. Glói með 24 stig, 7. sæti Eik með 18 stig, 8. sæti ÍR með 8 stig.
Heildarstigakeppnin fór á eftirfarandi hátt: 1. sæti UFA með 873,5 stig, 2. sæti UMSS með 864 stig, 3. sæti UMSE með 534,5 stig, 4. sæti UÍA með 172 stig, 5. sæti Umf. Selfoss með 166 stig, 6. sæti Breiðablik með 56 stig, 7. sæti USAH með 39 stig, 8. sæti Umf. Glói með 24 stig, 9. sæti Eik með 18 stig, 10. sæti Umf. Narfi með 12 stig og í 11. sæti ÍR með 9. stig.
Ein sýningargrein var á mótinu sem lukkaðist í alla staði mjög vel og er klárlega komin til að vera á einhverjum viðburðum UFA á komandi árum. En þetta var svokallað SNJÓKASTMÓT. Allir sem vildu komu og köstuðu snjóboltum eins langt og þeir gátu og fengu kastið mælt. Metið er nú rúmlega 40 metrar!!! Nú er að fara að æfa sig en nægur snjór er víst upp í Strýtu :o)
UFA vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessu móti á einn eða annan hátt kærlega fyrir og vonast til að sjá sem flesta á næstu viðburðum félagsins.