Æfingar í íþróttaskólanum sem eru á fimmtudögum kl. 16.00 - 17.00 í íþróttahúsinu við Laugagötu hefjast aftur 17. janúar. Þjálfari verður Birgitta Guðjónsdóttir íþróttakennari. Hægt er að bæta krökkum í hópinn og er tilvalið fyrir þau börn átta ára og yngri sem vilja prófa að æfa frjálsar íþróttir að gera það nú og mæta fimmtuaginn 17. janúar næstkomandi.