Akureyrarbær hefur nú farið fram á að það við íþróttafélög innan ÍBA að taka upp Nori kerfið til að fólk geti innleyst tómstundaávísanir sem bærinn veitir öllum börnum 6-13 ára.
hér er UFA greiðslusíðan:
Athugið að allir iðkendur UFA verða að ganga frá skráningu og greiðslu æfingagjalda í gegnum þessa síðu fyrir 30.nóvember 2014 til að staðfesta þátttöku í starfinu og halda plássi í hóp.. Hægt er að greiða með kreditkorti (VÍSA og Mastercard) og hægt er að skipta greiðslunum á allt að 3 greiðslur fyrir önnina. Jafnframt er fólki gert kleift að innleysa tómstundaávísunina í gegnum kerfið með því að haka á viðkomandi stað.
Leiðbeiningar fyrir notendur vefsins má sjá hér
Frekari upplýsingar um æfingar og æfingagjöld má sjá hér
Ef fólk ætlar að nýta tómstundaávísanir Akureyrarbæjar verður að muna að haka í það á viðkomandi stað á greiðslusíðunni. Ekki er hægt að leiðrétta eftirá og er íþróttafélögum bannað að endurgreiða þann pening skv. reglum bæjarins. Ef fólk er með tómstundaávísanir frá öðrum sveitarfélögum verður að hafa samband við gjaldkera, sob@simnet.is ÁÐUR en gengið er frá greiðslu.