Aðalfundur langhlaupa- og þríþrautardeildar var haldinn í gær.
Hlaupastarfið hefur verið með miklum blóma undanfarið ár. UFA Eyrarskokk er vaxandi hópur sem hefur verið áberandi í hlaupalífnu á norðurlandi undanfarin misseri og stór hópur hlaupara lagði land undir fót í haust og fór í maraþon í Munchen. Minni rækt var lögð við þríþrautina þetta starfsár og náðist til að mynda ekki að halda neitt mót á árinu en stefnt er að því að ráða bót á því á þessu ári.
UFA Eyrarskokk stefnir að því verða enn stærri og öflugri hlaupahópur. Nú á vordögum er áformað að halda tvö sex vikna hlaupanámseið annað frá miðjum mars og út apríl, en hitt í maí og júní og gefst þar kjörið tækifæri fyrir fólk að hefja hlaupaferilinn.
Stjórnarskipti urðu á fundinum. Elías Gíslason og Sævar Helgason gengu úr stjórn, en í þeirra stað komu Sara Dögg Pétursdóttir og Axel Ernir Viðarsson inn í stjórn.