Svavar Ingvarsson HSÞ setti Íslandsmet í kúluvarpi 4 kg í 15-16 ára flokki þegar hann kastaði 17,28 m og bætti met Vigfúsar Dan um 81 sm. Glæsilegur árangur hjá Svavari og óskum við honum til hamingju með metið. Mótið fór vel fram voru keppendur 110 frá 6 félögum. Viljum við nota tækifærið og þakka keppendum og starfsfólki fyrir komuna og aðstoðina.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.