Að venju mun UFA halda almenningshlaup 1. maí. Líkt og undanfarin ár verður boðið upp á þrjár vegalengdir, 400 m leikskólahlaup fyrir leikskólabörn (fædd 2007 og síðar), 2 km hlaup fyrir grunnskólakrakka og 5 km hlaup með tímatöku fyrir þá krakka sem vilja hlaupa lengra en 2 km og fullorðna.
Hlaupið er frá Þórsvellinum. Keppni í leikskólahlaupi hefst kl. 12:00, 2 km hlaupi kl. 12:10 og 5 km hlaupi kl. 12:30. Hægt er að forskrá sig í Sportveri milli kl. 14:00 og 18:30 á mánudag og þriðjudag og með því að senda tölvupóst á netfangið ufa@ufa.is. Einnig er hægt að skrá sig í á Þórsvellinum (í félagsheimili Þórs, Hamri) milli kl. 10:00 og 11:30 á keppnisdag. Athugið að við erum ekki með posa svo greiða þarf með peningum.