• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

1. maí hlaupi lokið - þvílíkur dagur!

Mikið fjölmenni var í 1. maí hlaupi UFA. Ríflega 660 hlauparar á öllum aldri hlupu af stað og þá eru ótaldir þeir foreldrar sem tóku sprettinn sem fylgdarmenn barna sinna í styttri hlaupunum, á svæðinu hafa klárlega verið vel yfir þúsund manns.  Þetta er að því er við höldum fjölmennasta 1. maí hlaup UFA frá upphafi. Veðrið var milt og gott, dagarnir gerast varla betri.

Um 260 leikskólabörn hlupu einn hring á vellinum eftir góða upphitun undir stjórn frjálsíþróttaþjálfarans okkar, Unnars Vilhjálmssonar. Kappið var mikið og sprettu þau vel úr spori.

Um 280 grunnskólabörn hlupu svo af stað í 2 km hring, í þremur hópum eftir aldri. Þau komu þreytt en sæl í mark eftir afrekið. Máttu þeir foreldrar sem fylgdu sumum eftir hafa sig öll við að missa ekki af þeim.

Að lokum hófst 5 km hlaup og þar voru skráð til leiks um 70 krakkar og 50 fullorðnir. Leiðin er býsna löng og á fótinn lengi framan af en allir stóðu sig vel og skiluðu sér kátir í mark. Úrslit hlaupsins eru aðgengileg hér.

Í þátttökukeppni grunnskóla sigraði Þelamerkurskóli í hópi fámennari skóli en þar tóku 35% nemenda þátt í hlaupinu, Valsárskóli var í öðru sæti og Grenivíkurskóli í því þriðja. Í flokki fjölmennari skóla sigraði Síðuskóli, þar tóku 19% nemenda þátt í hlaupinu, Glerárskóli varð í öðru sæti og Oddeyrarskóli í því þriðja. Við óskum skólunum til hamingju með þennan léttstíga nemendahóp.

Allir þátttakendur fengu þátttökupening að launum og frímiða í sund. Auk þess var pizzusneið frá Sprettinum og drykkur frá MS í boði upp við Hamar fyrir hlaupara.

Við hjá UFA erum alsæl með þátttökuna, kraftinn og gleðina sem var í hópnum, hlökkum strax til næsta 1. maí hlaups að ári.

Kunnum við styrktaraðilum hlaupsins bestu þakkir fyrir stuðninginn en þeir voru:
Akureyrarbær og Heilsueflandi samfélag, Þelamerkurskóli, Svalbarðsstrandarhreppur og Eyjafjarðarsveit. Sprettur-inn, MS og Stéttarfélögin á Eyjafjarðarsvæðinu.

Nokkrar myndir frá deginum.

1mai

1mai

1mai

1mai

 1mai

1mai

1mai

1mai

1mai

1mai

 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA