Mikiđ fjölmenni var í 1. maí hlaupi UFA. Ríflega 600 hlauparar á öllum aldri hlupu af stađ og ţá eru ótaldir ţeir foreldrar sem tóku sprettinn sem fylgdarmenn barna sinna, á svćđinu hafa klárlega veriđ um ţúsund manns. Veđriđ var svalt og nokkur snjókorn féllu en hlauparar létu ţađ ekki á sig fá og sprettu úr spori.
Um 260 leikskólabörn hlupu einn hring á vellinum. Kappiđ var mikiđ og kát voru ţau ađ fá verđlaunapening um hálsinn, ađ hlaupinu loknu.
Sami fjöldi, ţ.e. 260 grunnskólabörn hlupu svo af stađ í 2 km hring, í ţremur hópum eftir aldri. Ţau komu ţreytt en sćl í mark eftir afrekiđ. Máttu ţeir foreldrar sem fylgdu sumum eftir hafa sig öll viđ ađ missa ekki af ţeim.
Ađ lokum hófst 5 km hlaup og ţar voru skráđ til leiks um 50 krakkar og 40 fullorđnir. Leiđin er býsna löng og á fótinn lengi framan af en hlauparar stóđu sig vel og skiluđu sér kátir í mark. Úrslit hlaupsins eru ađgengileg hér.
Í ţátttökukeppni grunnskóla sigrađi Ţelamerkurskóli í hópi fjölmennari skóli en ţar tóku 28% nemenda ţátt í hlaupinu, jafnir í öđru og ţriđja sćti voru Síđuskóli og Glerárskóli međ 14% ţáttöku. Í flokki fámennari skóla sigrađi Valsárskóli, ţar tóku 9% nemenda ţátt í hlaupinu. Viđ óskum skólunum til hamingju međ ţennan léttstíga nemendahóp.

Fulltrúar Ţelamerkurskóla sem tóku viđ verđlaunum fyrir bestu ţátttöku fjölmennari skóla.
Fulltrúar Valsárskóla sem tóku viđ verđlaunum skólans fyrir bestu ţátttöku fámennari skóla.
Allir ţátttakendur fengu ţátttökupening ađ launum og frímiđa í sund. Auk ţess var pizzusneiđ frá Sprettinum og drykkur frá MS í bođi upp viđ Hamar fyrir hlaupara.
Viđ hjá UFA erum alsćl međ ţátttökuna, kraftinn og gleđina sem var í hópnum, hlökkum strax til nćsta 1. maí hlaups ađ ári.
Kunnum viđ styrktarađilum hlaupsins bestu ţakkir fyrir stuđninginn en ţeir voru:
Akureyrarbćr og Heilsueflandi samfélag, Ţelamerkurskóli, Svalbarđsstrandarhreppur og Eyjafjarđarsveit. Sprettur-inn, MS og Stéttarfélögin á Eyjafjarđarsvćđinu.
Akureyri.net birti skemmtilegar myndir frá deginum og einnig birtust myndir á vef mbl.is
Nokkrar myndir frá deginum.

Ljósm. Kristófer Máni

Ljósm. Kristófer Máni

Ljósm. Kristófer Máni

Ljósm. Kristófer Máni

Ljósm. Jóna Finndís

Ljósm. Jóna Finndís

Ljósm. Jóna Finndís
